| Bragðað á Íslandi |
|
Lögberg-Heimskringla · Föstudagur 6 September 2002 ... Útsýni! Síðasta heimsókn okkar á veitingahús var til hinnar frægu Perlu, eða "the Pearl" eins og við segjum á Vestur-íslensku! Þessi frumlega vatnsgeymsla hýsir snúnings-veitingahús sem kom okkur á óvart með einstöku útsýni yfir Reykjavík og einnig fjöllin í kring. Og, við vorum hér í einstöku veðri, 21°C, sólríkt og heiðskírt. Útsýnið sló okkur svo að við náðum ekki að einbeita okkur að matnum sem var í þann mund að gleðja okkur, en þegar maturinn kom, var framreiðslan dæmigerð fyrir það sem við höfum lært að venjast á þessum glæsilegu íslensku veitingahúsum. Íslenskir matreiðslumeistarar eru mjög samkeppnisfærir og hafa vakið athygli á verðlaunapöllum. Allar þrjár máltíðir okkar á veitingahúsum voru meistaraverk í sköpun og framreiðslu. Í Perlunni slá forréttirnir fyrsta tóninn. Humarsúpa, andapaté og salat, framreitt af þjónum í Smóking. Svo kom jógúrtið og bláberja-milliréttur til að hreinsa bragðlaukana. Auðvitað fengum við okkur lamb í aðalrétt, jafnvel þó við þyrftum að berjast við að borða jafn saklausa veru og lamb. Einn biti af safaríku, meyru kjötinu fékk okkur til að gleyma samviskubitinu, og nú vitum við af hverju þetta er sér-íslenskur réttur! Okkur finnst Perlan þess virði að heimsækja, jafnvel fyrir kaffisopa og eftirrétt, sérstaklega á fallegum degi!! Juliann Whitney, Windsor, ON |






